Smáhundadeild er deild innan Hundaræktarfélags Íslands. Starf deildarinnar tengir saman eigendur, ræktendur og áhugafólk um þær hundategundir sem tilheyra henni.
Á vettvangi deildarinnar eru meðal annars sýningar, sýningaþjálfun og fræðsla. Deildin heldur utan um stigatalningu og viðurkenningar fyrir árangur hunda hennar.
Spurningar og ábendingar má senda á smahundadeild@gmail.com eða í skilaboðum á Facebook-síðu Smáhundadeildarinnar.