Dagsetning fundar: 19.feb 2025, Húsnæði HRFÍ
1. Kosning fundastjóra og ritara.
2. Ársskýrsla
3. ársreikningur
4. kosning í stjórn, 3 sæti laus
5. önnur mál
1. Anja Björg Kristinsdóttir kosin fundastjóri og ritari, lögmæti fundar kannað
2. Engar athugasemdir við skýrslu stjórnar
3. Engar athugasemdir við ársreikning
4. Guðmundur, Sigríður Margrét og Anna María endurkosinn í stjórn. Eitt mótframboð barst
5. Önnur mál:
Garðheimar ræddir, deildin ákvað að vera með í gróðurhúsinu í sama básafyrirkomulagi og Stórir hundar fá.
Nefndir. Rætt var um að stofna nefdir s.s. sýningarnefnd, viðburðarnefnd o.s.frv. þar sem við erum stór deild og margar hendur vinna létt verk.
Rætt var um að telja og hafa opinbera stigatalningu eftir hverja sýningu. AM+ SM
Stigagjöf deildar rætt. Eru of mörg stig gefin fyrir grúppu sæti og BIS, Anja skoðar hjá öðrum deildum, svo meiri keppni verði innan hverjar tegundar frekar en svakalega mörg stig fyrir úrslit.
Einnig var rætt um núverandi stigagjöf varðandi hort heiðra eigi unglia, og einnig fleiri sæti s.s. stigahæsta öldung og ræktanda 1-3, Einnig var rætt um að heiðra þá sem komust i sæti í úrslitum hvolpar og ungliðar fyrir framúrskarandi árangur.
Fundir stjórnar voru alls átta á árinu, en önnur mál voru einnig tekin fyrir í gegnum facebook síðu stjórnar á ársfundi mars 2024 voru kosnar voru inn til tveggja ára Anja Björg og Sigrún. á fyrsta fundi nýrrar stjórnar skipti stjórn með sér verkum, formaður Sigríður Margrét Jónsdóttir, gjaldkeri Anna María Ingvarsdóttir, meðstjórnendur Ritari Guðmundur Rafn Ásgeirsson, Anja Björg Kristinsdóttir og Sigrún Vilbergsdóttir
Við héldum tvær deildarsýningar á árinu í byrjun árs með Lee Grogan og í seinni hluta árs með Lindu Kjeksrud, báðar skráningar fóru í 100 hunda og bættust við ræktunarhópar og hvolpar á seinni sýningunni. Sýningin fór vel fram og almenn ánægja var með sýninguna, dómarapróf og nemar voru á báðum sýnungum. í maí 2024 bókuðum við einnig Arne Foss til að dæma á sýningu hjá okkur í Apríl 2025 Okkur barst einnig sú hugmynd að halda saman með öðrum deildum gr´´uppu 9 sýningu sem er til skoðunar og þarnast útfærslu en vel tekið í að skoða jafnvel 2026 / 2027. undir lok árs fengum við beiðni frá Tibet terrier og lhasa apso að þau fengju að taka þátt í oriental sýningu sem verður væntanlega 2025, sem stjórn sá ekkert til fyrirstöðu.
Þegar smáhundadagar voru í í garðskálanum (eða hvað skal kalla svæðið) þá skilst mér að hafi verið almenn óánægja með það m.a. því það var kalt og mikil læti í roki og rigningu. Leiddi það til þess að útbúin var aðstaða fyrir smáhunda inni en það virðist alltaf hafa verið ætlast til þess að smáhundum sé boðin aðstaða uppi á borðum, fyrir gesti og gangandi að nálgast óhindrað.
Í okt 2021 sendi smáhundadeildin erindi á Emil þar sem óskað var eftir því að smáhundadagar yrðu með samskonar uppsetningu og er á stórhundadögum. Þeim pósti var ekki svarað. Næstu smáhundadagar voru ekki fyrr en í mars 2022. Í mars 2022, eftir að smáhundadagarnir fóru fram var aftur óskað eftir því að aðbúnaður smáhunda yrði með sama hætti og fyrir stóru hundana. Emil svaraði þeim pósti og upplýsti að hann myndi vera í sambandi fyrir skipulagningu næstu smáhundadaga. Það gerðist þó ekki þegar kynningin var skipulögð í okt 2022.
Í febrúar 2024 voru næstu smáhundadagar og heyrði formaður smáhundadeildar í Emil fyrir þá kynningu og eftir það samtal stóð hún þeim skilningi að uppsetning kynningar yrði með sama hætti og fyrir stóru hundana, en í raun var um að ræða lítil gerði og áfram smáhundar uppi á borðum. Emil upplýsti að ekki væri hægt að bjóða smáhundum uppá sama aðbúnað og stóru hundunum því rýmið sem þeir fengu var í notkun fyrir aðra starfsemi þegar smáhundakynningin var skipulögð.
Í sept 2024 voru aftur skipulagðir smáhundadagar og enn er skipulagið óbreytt og ekki að sjá að það sé neinn vilji til að mæta óskum smáhundadeildarinnar hvað varðar aðbúnað hundanna á þessum kynningum. Þá hefur Emil sett póstana fram eins og þessar kynningar séu skipulagðar í samráði við HRFÍ. 18. sept (3 dögum fyrir kynninguna hafði markaðsstjóri garðheima samband við okkur og bauð uppá fund en stjórn smáhundadeildarinnar hafði ekki tök á að mæta auk þess sem okkur þótti ekki rétt að mæta ein sem talsmenn allra smáhunda – þegar við upplýstum um það fengum við svarið „Það var leitt að heyra. Við höfum þá ekki aðra valkosti en að halda áfram með sýninguna eins og áætlað var.“ – Við getum því ekki ályktað annað en að það sé enginn vilji til að koma til móts við okkur. Er ekkert að lista hér hvað er að skipulaginu en líka vert að hafa í huga af hverju ættum við að vera að leggja þessa vinnu á okkur í þágu Garðheima. Ekki eru þátttakendur eða félagið að fá neinn ávinning af þessu.
rætt var um að endurskoða starfsreglur ræktunardeilda, reglur um skráningu í ættbók og dýravelferðarreglur, þær skarast og þarf að aðlaga. Tillaga að halda Smá og Stórhundadaga í húsnæði félagsins og var skipuð nefnd um það mál. Deildarsýningahandbók. Sýnileiki félagsins.
Gerðum samning við Dýrabæ í byrjun árs 2024, sem gildir í 12 mánuði.** tillaga að nýjum samningi til Dýrabæjar hefur verið send og niðurstaðan er??
Lokahóf deildarinn fyrir árið 2024 fór fram núna í byrjun árs og var viðburðurinn vel sóttur, yfir 20 hundar voru heiðraðir sem stigahæstu hundar sinnar tegundar ásamt stigahæsta ræktanda og öldung, yfir 40 manns mættu á viðburðinn.
Boas gráðun hófst á árinu og er núna orðin krafa fyrir French Bulldog og Pug 29 French bulldog nú þegar farið í gráðun, og niðurstöður voru að 4 hundar voru með gráðu 0, 9 hundar með gráðu 1, 16 hundar með gráðu 2 og enginn hundur með gráðu 3 16 pug hundar farið og var 1 hundur með gráðu 0, 11 hundar með gráðu 1, 4 hundar með gráðu 2 og enginn hundur með gráðu 3. Skoðunarbeiðni ´BOAS próf fer í gegnum hundavef og er lögð inn beiðni þar til prófsins sem fæst svo skráð í gagnagrunn hundsins.
Sett var upp gróflegar niðurstöðr okkar tegunda á árinu í augnskoðun (mynd)
Kastalagerði
Mættir voru Sigríður Margrét sem einnig ritaði fundinn, Anna María, Sigrún, Guðmundur og Anja
1. Stjórn skiptir með sér verkum
Formaður og ritari - Sigríður Margrét Jónsdóttir
Gjaldkeri og Samskiptastjóri - Anna María Ingvarsdóttir
Meðstjórnandi og Vefstjóri - Guðmundur Rafn Ásgeirsson
Meðstjórnandi Anja Björg Kristinsdóttir
Meðstjórnandi Sigrún Vilbergsdóttir
(vefstjóri sér um heimasíðu og samskiptastjóri sem sér um facebook og tölvupóst)
2. Fundargerðir
Ákveðið að bæta hvernig fundargerðir fara á netið, að þær séu ítarlegri og upplýsandi fyrir deildar meðlimi að fylgjast með starfinu.
3. Afgreitt milli funda
nýir tengiliðir fyrir papillon og lowchen, búið að tilkynna fráfarandi tengilið og vefstjóri mun breyta á heimasíðu
Tölvupóst samskipti við deildar meðlimi sem eru ósáttir með að hafa ekki náð að skrá á sýninguna, stjórn sendi svar sjá neðst**
Garðheimar, breyting á fyrirkomulaginu hjá þeim til hins betra að mati stjórnar, einungis tengiliðir geta meldað inn sína tegund og aðbúnaður fyrir tegundina líkt og á stórhundadögum í gerðum, stjórn hvatti tengiliði að skrá sig.
4. Hundar fyrir unga sýnendur á Deildarsýningunni
Anna María og Sigga Magga sjá um að finna hunda fyrir unga sýnendur sem vilja taka þátt í deildarsýningunni okkar í keppni ungra sýnenda
5. Samningur við Dýrabæ
Endurnýjuðum samninginn okkar við Dýrabæ með smá breytingum og Anja Björg mun heyra í Degi með að skrifa undir
6. Bikarar og verðlaunapeningar fyrir unga sýnendur
Áætlað er að kaupa 3 nýja farandbikara fyrir stigahæsta hund, stigahæsta ræktanda og stigahæsta öldung og einnig þarf að kaupa verðlaunapeninga/ skildi fyrir unga sýnendur , lagt til að heyra í Agli með Lasergaurinn, Sigga Magga sér um.
Anja fór einnig yfir gamla bikarinn okkar og hvernig það var skráð eftir ábendingu frá deildarmeðlim, þar sem ekki var rétt skrifað ártalið, þetta munum við leiðrétta á nýju bikurunum.
7. Nefndir
Stjórn hefur ákveðið að stofna 4 nefndir og fá deildarmeðlimi til liðs við okkur, einungis geta komið til greina aðilar sem eiga hunda í deildinni okkar.
Nefndirnar eru 4 og sem hér segir;
Heilsufarsnefnd - Áb. Guðmundur sem mun stýra nefndinni.
Tilgangur; Fara yfir allar tegundirnar í deildinni, skoða Norðurlöndin og heimalönd tegundanna og hvaða vinna er að eiga sér stað þar, vera í sókn fyrir hönd heilsu tegundanna okkar.
Skemmtinefnd - Áb. Sigrún sem mun stýra nefndinni
Tilgangur; Skipuleggur árlegt grill, göngur / hittinga, ásamt fjáröflunum fyrir deildina, td. Bingó.
Sýninganefnd - Áb. Sigga Magga og Anja sem munu stýra nefndinni.
Tilgangur; Skipuleggja sýningar og dagsetningar þeirra nokkur ár fram í tímann, velja dómara fyrir sýningar, hafa amk eina sýningu á ári og einnig halda okkur við Halloween skemmtunina okkar og festa hana í sessi og sjá um sýningarþjálfanir fyrir deildina.
Ritnefnd - Áb. Anna María Ingvarsdóttir sem mun stýra nefndinni
Tilgangur; Sér um að koma td. fræðandi erindum um tegundirnar okkar á facebook síðuna / heimasíðu, taka saman fræðslu um hverja tegund og vera með “tegund mánaðarins” ásamt því að taka saman sýningarárangur hunda úr deildinni eftir hverja sýningu og setja í póst á síðuna okkar ásamt fleiru sem viðkemur deildar meðlimum.
8. Talning stiganna fyrir stigahæstu hunda deildarinnar
Anja hefur verið að skoða útfærslur og ákveðið var að halda okkur við talninguna okkar sem áður hefur verið fyrir tegundirnar, en fylgja HRFÍ í talningu fyrir grúppu og BIS, stjórn tekur saman útskýringu og setur á tilkynningu á facebook, Anna María setur inn
9. Heimasíðan
Ákveðið var að fá fci teikningarnar til að setja inn á okkar tegundir í stað myndanna sem nú eru, einnig að hafa link á standardinn á hverri tegund líka, vefstjóri fer í þá vinnu
10. Deildarsýningin okkar í apríl
fá uppfært PM frá framkvæmdastjóra, pósta í viðburðinn og einnig senda dómara
Dómari, tillaga að hafa samband við Ingunni Ómarsdóttur, Ingunn samþykkti strax næsta dag, því er það látið fylgja þessari fundargerð
Rósettur, tökum núna rósettur frá dönsku fyrirtæki, Gummi sér um að panta fyrir okkur,
Verðum aftur með facebook live en verið er að athuga með ljósmyndar
Dagskrá sett upp og verður birt með uppfærðu pm í viðburðinum
Farin verður ferð með Arne á sunnudeginum
11. Sýningarþjálfun fyrir deildarsýninguna
Sigga Magga og Anja skoða og finna tíma og dagsetningu
12. Vorviðburður
Byrja að skipuleggja vorgrill í Guðmundarlundi eða álíka stað sem svo skemmtinefnd mun koma að
13. Fulltrúaráðsfundur
Stjórn fékk boð á fulltrúaráðsfund 3. apríl nk og þarf að koma með málefni á dagskrá eigi síðar en 24. mars nk., hér koma tillögur SHD
hvernig sér stjórn HRFÍ fyrir sér innflutning gæludýra, og að hægt verði að gera þær breytingar þannig að smáhundar (undir 10kg) geti farið í cabin?
samtal um að deildirnar sameini stigagjafir deilda?
samskipti við deildir frá stjórn HRFÍ, sem okkur finnst ekki hafa tekið bótum þrátt fyrir að leitast hafi verið eftir því m.a. á fyrsta fulltrúaráðsfundi fyrir um ári síðan, stjórn HRFÍ er bakland stjórna deildanna og því mikilvægt að td það sem kemur inn á borð stjórnar HRFÍ sem varðar tegundir deildar að þá sé samtal við viðkomandi deild, ekki að stjórnarmenn lesi eitthvað fyrir tilviljun í fundargerð að fjallað hafi verið um deildina eða tegund í deildinni, ekki kemur frétt þegar fundargerð stjórnar kemur inn á heimasíðu félagsins eða tilkynning á facebook síðu, fundargerðir stjórnar HRFÍ koma seint og illa inn, væri ekki hægt að senda td pósta á deildirnar með nýjustu fundargerð hverju sinni? Þá eru stjórnir deilda upplýstar að einhverju leiti og geta þá einnig leitast eftir samtali við stjórn ef svo á við.
Að haldið sé námskeið á cirka 2 ára fresti um ma fundarsköp og einnig kröfur til stjórnarmanna og hvernig skal vinna í stjórn.
14. Russian toy
Skipuleggja með sjálfboðaliðum, einnig skrá tegundina í þar tilgert skjal Garðheima
15. Önnur mál
ekkert
Fundi slitið kl 22:45
**
"Sæl xxxxxxx
við skiljum vel svekkelsið yfir því að hafa misst af skráningunni á sýninguna. Við viljum upplýsa þig að það er ekki í gangi nein vinna við að gera breytingu á fyrirkomulagi sýningarinnar og eru nokkrar ástæður fyrir því.
Fyrst er að nefna að sækja þarf um sýningu með 6 mánaða fyrirvara skv. sýningareglum félagsins og því kom ekki til greina að sækja um breytingu á sýningunni eftir að uppselt var á sýninguna. Þá teljum við að margir hafi skráð sig á sýninguna því það var sérstakur áhugi fyrir því að fá Arne Foss til að dæma hundana þeirra. Því teljum við að það hefði leitt til mikillar óánægju hjá þeim sem hefðu verið fluttir á hinn dómarann, hefði það gengið upp að bæta við dómara á sýninguna. Ljóst er að ekki hefði verið hægt að skipta þessu uppá fyrstu 100 og svo þá sem skráðu sig eftir það, það hefði alltaf þurft að skipta tegundum niður á dómara.
Einnig erum við á því að ekki hefði verið hægt að setja upp tvo hringi á Melabrautinni og þó við hefðum leitað til Arne með að hafa tvískipta sýningu þá var Melabrautin bókuð daginn eftir.
Að lokum þá viljum við biðja þig að hafa í huga að við sem sitjum í stjórn smáhundadeilarinnar erum að gefa tímann okkar í þágu félagsmanna. Við leggjum okkur fram um að veita góða þjónustu en það eru takmörk hvaða kröfur eru gerðar til sjálfboðaliða. Leitt er frá því að segja að virkni félagsmanna hefur verið takmörkuð og því minna sem hægt er að gera en þegar fleiri hendur koma að málum."
RVK
Mættir voru Sigríður Margrét sem einnig ritaði fundinn, Anna María, Sigrún, Guðmundur og Anja
1. sýning með Arne Foss
Veitingar, verðlaun, rósettur
uppsetning kl 16:00
hvað á að leigja hjá HRFÍ
teppi eða fá hjá dyrabæ, ath með terrierdeild sem er eftir okkur
kaffivel,, borð, rosettur og domara , tölvubunaður, skilrúm, standard pakki, dukar frá hrfi, numerastandar,
ganga frá aðilar, við -
skreytingar - blöðrur á vigtuðum stöndum -gjafir fyrir dómara og starfsfólk
Ferðast með Arne á sunnudeginum um Snæfellsnes
2. Nefndir, fámenn skráning, komnar þrjár og allar í heilsuf
3. Vöfflukaffi 8. mai í félaginu, Anna María pantar salinn
4. önnur mál
kl 20.00
mættir voru Sigga Magga, Guðmundur, Singa og Anna María fjarverandi var Anja
1. Tengiliðir fyrir tengiliðalausar tegundir
Auglýsa á eftir tengiliðum fyrir þær tegundir sem hafa ekki tengilið, þeir skulu gera facebook síðu sem er opin öllum og næstu tengiliðir geta tekið við og gera gmail sem getur gengið tengiliða
2. deildarsýning SHD 2026
Verður haldin 25 og 26 apríl í húsnæði félagsins, einföld sýning á tveim dögum fjárhagsáætlun og umsókn um sýninguna Samband við dómara Event um leið og leyfi er komið, ath hvort við fáum vilyrði fyrir að fá uppí 90-100 hunda á dag
3. lokahóf deildarinnar
Ákveðið var að hafa hana strax eftir nóvember sýninguna a virku kvöldi og hafa þá svona jóla skemmtun, með jólaglöggi og tilheyrandi ákveðið að hafa 3 eða 4 des ath salinn hja ágústu, gera event jolagathering SHD heiðrum ungliða, hund og ræktanda og stigahæstu í hverri tegund, chihuahua, verða með heiðrun á sama tíma fyrir sína tegund en hún reiknast sér á þessu ári, á næsta ári fara þeir inn í stigareikning SHD
4. stigatalning
- anna maria er með talninguna, og ungliðar koma sennilega líka inn ef tekst til - sigga magga telur fyrir ræktendurnar, fara inni allar tegundir og sjá heiðursverðlaun og einnig sætaröð í BIS
5. staðan á nefndunum okkar tveimur
ákveðið að leggja niður þessar nefndir sem voru stofnaðar, skoða að pikka upp þráðinn á næsta ársfundi
6. Heimasíðan og facebook síðan
dýrabær, þurfum að vera duglegri þar að deila efni frá þeim og einnig því sem er gangi í tegundunum okkar, félaginu, sýningum og vinnuprófum og öðru sniðugu ma að utan frá smáhundaklúbbum eða tegundarklúbbum sem eru með okkar tegundir muna að ýta a follow a siðunni okkar svo þið missið ekk af tilkynnigum
7. Fulltrúaráðsfundur
- mál á dagskrá - Sámur - innflutningsmál, hverjir eru í nefnd, hundar í farþegarrými, hvar er vinnan, stjórn shd leggur mikla áherslu á að hafa namskeið fyrir stjórnir deilda
fundi lokið kl 22:00