Dagsetning fundar: 20.feb 2024, Húsnæði HRFÍ
1. kosning fundastjóra og ritara
2. Ársskýrsla
3. ársreikningur
4. kosning í stjórn, 2 sæti laus
5. önnur mál
1. Eva Kristinsdóttir kosin fundastjóri, Anja Björg Kristinsdóttir kosin ritari lögmæti fundar kannað
2. engar athugasemdir við skýrslu stjórnar
3. engar athugasemdir við ársreikning
4. Anja Björg og Sigrún endurkosnar í stjórn, engin mótframboð
5. engin önnur mál
Mættir stjórnarmenn: Sigga Magga, Gummi, Anja, Anna María
Fjarverandi stjórnarmenn: Singa
Mættir varamenn: 0
Að auki sátu fundinn: 2 hundar
Fundarritari: Anja
1. Styrktarsamningur
Farið yfir svör frá 5 fóðurinnfytjendum sem styrktaraðilum fyrir deildina.
Stjórn ákvað að þiggja Styrktarsamning við Dýrabæ, fannst okkur þau bjóða besta samningin.
2. Heiðrun deildarinnar.
Hafa samband við tengiliði eða eigendur stigahæðsta hund hverar tegundar og boða á heiðrunina/ársfundinn.
3. Aðalfundur
Kjósa þar fundarstjóra
Athuga lögmæti fundar.
tvö sæti eru laus. Anja og Singu. Báðar gefa kost á sér aftur.
Fá félagatal. SM
Hafa kosningar miða tiltæka.
Umræða
4. önnur mál
1. Auglýsa sýningunna
2. Smáhundadagar Garðheimum. Ræddum um aðstöðu hundanna.
Auglýsa sýninguna betur og minna fólk á sýningunna okkar 14 apríl.
Fimmtudaginn 23. maí kl. 20:00 var haldinn þriðji fundur stjórnar Smáhundadeildar HRFÍ. Fundurinn var haldinn í Kastalagerði, 200 Kópavogi. Mætt voru: Anna María Ingvarsdóttir, Guðmundur Rafn Ásgeirsson, Sigríður Margrét Jónsdóttir og Sigrún Vilbersdóttir. Guðmundur Rafn Ásgeirsson ritaði fundinn.
Farið var yfir framkvæmd síðustu sýningar. Allir í stjórn voru sammála um að allt hafi gengið vel og að almenn ánægja hafi með framkvæmd hennar. Bæði á meðal þátttakenda og starfsfólks sýningarinnar. Dómari sýningarinnar, Lee Grogan, var afar ánægður með dvöl sína hér á landi. Sýningin kom einnig vel út fjárhagslega og skilaði hún hagnaði upp á hundrað þrjátíu og eitt þúsund krónur.
Borin var fram tillaga um að sækja um að halda aðra deildarsýningu á þessu ári. Tillagan var samþykkt og ákveðið sækja um að halda sýningu í okóber n.k.
Rætt var um að taka inn reynslumikinn dómara sem gæti einnig miðlað af þekkingu sinni með einhverskonar námskeiði eða fyrirlestri. Margar tillögur bárust en ákveðið var að hafa samband við Arne Foss frá Noregi til að athuga með möguleika hans á að dæma á þessari sýningu. Nokkrir dómarar voru nefndir til vara og verður það skoðað betur ef það þarf.
Hugmyndir voru um að fá vel þekktan ræktanda og sýnanda frá Bandaríkjunum, til landsins á árinu í þeim tilgangi að halda námskeið og fyrirlestur fyrir deildarmeðlimi.