Fundurinn tekinn á teams, mættir voru Sigríður Margrét sem einnig ritaði fundinn, Anna María, Guðmundur og Anja Björg.
Ársskýrslan okkar, farið yfir og rætt
erum komin með fundarstjóra fyrir ársfundinn, Guðbjörg Guðmundsdóttir
búið er að senda á HRFÍ að fá lista yfir greiðandi félagsmenn og einnig kjörseðla
stigatalningastkjalið, verður á síðunni okkar eftir næstu sýningu og verður uppfært eins fljótlega og tími gefst eftir hverja sýningu samkvæmt okkar skipulagi um stigatalningu ?
undirbúningur fyrir fund stjórnar HRFÍ um PRA í cotoninum og ríkjandi hunda í tegundinni
nýir tengiliðliðir
Ásta María Karls fyrir griffon
Anna Guðjóns fyrir Chihuahua
Gauja fyrir papillon
skilgreining tengiliðs, komið inn til tengiliða á síðuna þeirra til umfjöllunar
kl. 19:15
Fundur hefst kl.19:20
Sigríður Margrét leggur til fundarstjóri sé Guðbjörg Guðmundsdóttir og Anna Guðjónsdóttir ritari fundar. Það er samþykkt með handauppréttingu.
Fundarstjóri kannar lögmæti fundar, hann er lögmætur til hans var boðað á siðu HRFÍ og FB deidarsíðu.
Sigríður Margrét kynnir skýrslu stjórnar. Fundarmenn ræddu um skýrlu stjórnar. Gerð athugasemd við að það vantar innfluttan Chihuahua. Sett fram spurning um hvort skýrsla stjórnar þurfi að vera eins ýtarleg, um er að ræða upplýsingar sem allri geta sótt inn á hundavef en þá var bent á að ekki allir kunna að kalla fram þessar upplýsingar. Einnig bent á að þessar upplýsingar eru mögulega ekki aðgengilegar eftir einhvern tíma. Einnig bent á að Klara Símonardóttir hefur haldið fyrirlestur um matador rakka.
Anna María kynnir ársreikning deildarinnar. Spurt um styrk sem Chihuahua deild fékk frá Dýrabæ. Því svarað að ekki er búin að sameina fjárhag deildanna.
Árskýrsla og ársreikningur samþykkt.
Ekki bárust önnur framboð til stjórnar og sitjandi stjórnarmenn því sjálfkjörnir áfam.
Ásta María bendir á að að kjósa þarf tengiliði fyrir tegundir á ársfundi.
Sigríður svara að gott sé að taka þessa umræðu, bendir á að misjafn sé á milli deilda hvernig kosning tengiliða sé hagað. Stjórn smáhundadeildar hefur litið svo á að einstaklingur mætir á ársfund og bíður sig fram til stjórnar þá verði kosið annars hefur verið litið svo á að nema tengiliður taki annað fram þá vilji hann sitja áfram sem tengiliður.
Umræður um kosningu tengiliða, umræður um virkni félagsmanna. Umræða um störf tengiliða. Stjórn hefur sett fram inn á tengiliða hóp á FB tillögu um starfsreglur tegiliðs, athugasemd hefur verið gerð og er stjórn meðvituð um að þær þarfnist frekari vinnu.
Stjórn þarf að taka samtal við tengilið tegundanna um að skv reglum HRFÍ þurfi að kjósa um tengilið á ársfundi deildarinnar og því þurfi tengiliðir að mæta á ársfund til þess að bjóða sig fram til áframhaldandi starfa.
Fundarstjórni slítur fundi klukkar 20:08
Mættar: Anna María Ingvarsdóttir (AMI), Sigríður Margrét Jónsdóttir (SMJ), Anja Björg Kristinsdóttir (ABK), Sigrún Vilbergsdóttir (SV)
Fjarverandi: Guðmundur Rafn Ásgeirsson
Fyrsti fundur stjórnar Smáhundadeildar HRFÍ var haldinn 15. apríl 2026. Á fundinum var AMI kosin gjaldkeri og ritari en SMJ formaður; aðrir stjórnarmenn eru meðstjórnendur. Meginumræðuefni fundarins voru undirbúningur að vorssýningu deildarinnar sem haldin verður 25.–26. apríl 2026. Fjallað var ítarlega um skipulag sýningardaganna, þ.m.t. starfsmannahald, dómarann og gistingu hennar, veitingar, samskipti við Dýrabæ og MAST, og kynningu á sýningunni. Upplýsingar verða sendar á dómarann og Dýrabæ.
Stjórn samþykkti að halda hrekkjavökuhátíð 17. október og hóf undirbúning hennar.
Ákveðið var að deildarsýning 2027 yrði einföld sýning yfir tvo daga og að kanna hvort Andrés Tunold-Hansen gæti dæmt 10.–11. eða 24.–25. apríl.
Einnig var ákveðið að halda lokahóf deildarinnar miðvikudaginn 9. desember, vikuna eftir sýninguna.
Rætt var um rósettur, ljósmyndara, stigatalningu, fræðslu og niðurstöðu augnskoðunar.
Allir stjórnarmenn sátu fundinn, sem haldinn var á Google Meet.
Ákveðið var að halda fjáröflunarviðburð með pöbbkvissi 19. nóvember.
Samþykkt var að hefja uppsetningu heimasíðu deildarinnar á Google Sites og tók AMI verkefnið að sér.
Þá var samþykkt að SMJ ynni áfram að fræðsluáætlun og fyndi tímasetningar fyrir erindi.